fimmtudagur, október 06, 2005

Nú er komið að því...

...á morgun ætlar Edward the Great að setja allar stafrænu myndirnar sínar á geisladisk og fara með þær í framköllun. Ég fæ bara hroll þegar ég hugsa til þess að tölvan mín mynda hrynja eins og Helenu tölva! Almáttugur, öll skólavinnan og allar myndirnar!! Ekki það, ég geymi nú reglulega allar möppur úr fartölvunni minni, á stóru heimilistölvunni (lygari, ég hef einu sinni fært allt efni úr fartölvunni minni yfir á stóra heimilishlunkinn... ekki Hjört heldur stóru tölvuna).
Ég er annars að fara að hitta Ólu systur annað kvöld niðri í bæ. Svo ætlum við Hjörtur í bíó að sjá Mørket á laugardaginn en ætlum a.ö.l. að taka því rólega. Við erum búin að fara í partý tvær helgar í röð og sökum þess hef ég náð að læra minna heima heldur en hin metnaðarfullu plön mín segja til um. Ég vinn upp timburmenn síðastliðinna tveggja helga um þessa helgi... hopefully.
Jæja, nú er ég að lamast úr þreytu og hlátri. Ég var að lesa bloggið hennar Brynhildar og verð hreinlega að fara inn og leggja mig, svo máttvana er ég að hlátri!
Góða nótt gríslingar
Ykkar einlægi Bob Geldoff