...tekur sig bara ansi vel út. Það er reyndar ekki nýtt heldur nýmálað. Ég var búin að ætla mér að pússa það og mála síðan við fengum það gefins hjá bróður hans Hjartar, en nennti aldrei að drífa í'ðí. Í gær ákvað ég loksins að skella mér í þetta verkefni og fór og keypti tvær litlar dósir af trémálningu í sitthvorum bláum litnum. Þetta kemur barasta ansi vel út, sjá "fyrir og eftir"-myndirnar:
Fyrir
Fyrir

Eftir

Annars er fátt að frétta frá Kaupmannahöfn, fátt en gott. Við fórum í bíó skötuhjúin í gærkvöldi og fengum okkur draslmat á nærliggjandi skyndibitastað áður en við fórum á myndina.
Svo fór ég í svona frekar leiðinlega og erfiða ferð í Ikea í gær til að skipta sængurfötum sem við höfðum keypt í síðustu ferð (eins og við förum alveg minnst tvisvar í viku í Ikea!). Sængurverin voru óvart fyrir tvíbreiðar sængur, úps...
Leiðinleg og erfið var þessi ferð af því að ég þurfti að bíða svo lengi eftir strætó til að komast heim úr Ikea og var þar að auki með nýju sængurfötin í poka ásamt RISAstóru plasti til að setja undir skrifborðsstólinn okkar. Þetta rogaðist ég með í strætó og hann var abbsolúttlí troðfullur af fólki og bílstjórinn talaði alla leiðina við sjálfan sig. Sem sagt, strætóbílstjóri dauðans.
Hins var þetta líka dálítið skemmtileg ferð því við fengum falleg sængurföt í skiptum við hin, svona bláröndótt sænsk (hvað annað en blátt og hvítt heima hjá Matlock) og svo keypti ég líka gamaldags ketil til að hafa á eldavélinni og gefur frá sér hljóð þegar vatnið sýður. Ég veit ekki hvort akkúrat þessi ketill sem ég tók í búðinni, er eitthvað þunglyndur en alla vega grætur hann þegar vatnið sýður, hann gefur ekki frá sér þetta týpísk hátíðni-væl heldur grætur hann með dimmum "rómi". Litla greyið. Hann saknar líklega Sverige og Smálandanna þaðan sem hann er kominn.
Jæja, kominn tími til að fara niður og sækja þvottinn og hengja út í sólskinið.
Góðan helgarafgang :)

|