föstudagur, september 23, 2005

Misskilin hreinskilni

Af hverju heldur sumt fólk að hreinskilni þeirra eigi alltaf rétt á sér? Kannist þið ekki við það þegar talið berst að kostum og göllum fólks og þessar umræddu týpur hafa þetta að segja um sína helstu galla: "Ég er svo ógeðslega hreinskilin(-n), ég bara ræð ekkert við það og læt allt flakka! Ég held að mörgum vinum mínum finnist það geðveikur galli en ég meina... kommonn, that's just me!". Ég hef hitt nokkuð margar manneskjur sem álíta sig vera gazalega hreinskilnar en eru lúmskt stoltar af því. Það sem þetta fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir, er að það sem þau álíta vera hreinskilni, kallast dónaskapur hjá mörgum öðrum. Af hverju heldur fólk að það sé í fínasta lagi að koma með komment eins og "Hvar grófstu þessa kápu upp? Þú hlýtur að fá borgað fyrir að vera í henni, svo skelfileg er hún!" eða "Mmmm, flott gleraugu sem þú ert með... NOT! Minna mig allra helst á gleraugun hans Roy Orbinson!" Hlýtur maður ekki að kaupa sér kápu/gleraugu.. what ever, af því að manni finnist kápan/gleraugun.. what ever, vera falleg?? Ekki nema maður sé meðlimur af "Því ljótara því betra", samtökum gegn fegurðarþráhyggju Vesturlandabúa, þar sem reglurnar eru þær að maður megi aldrei ganga í fötum nema þau séu ljót og helst stinking, og minnst 10 ára gömul, aldrei ganga um í öðru en gömlu góðu Squash skónum og um gleraugun gilda þær reglur að þau verði að vera stór og með stöng! Sértu meðlimur af þessum samtökum, þá eru ofangreind komment auðvitað bara hrós. Ef aftur á móti hreinskilnu týpurnar efast um að vinur þeirra eða vinkona séu meðlimir af þessum samtökum, þá ættu þær að "holde tungen i munden" og muna að hreinskilni á ekki alltaf rétt á sér.

Bara örlítið bjartsýnishjal til að koma ykkur í gott skap fyrir helgina :)
Með bros á vör við leikum Búkalú,
yfir og út og góða helgi lesendur góðir