þriðjudagur, september 13, 2005

Lagalisti undanfarinna mánaða

Er sick að vera búin að hlusta á sömu 25 lögin síðan á útmánuðum? Ef svo er þá er ég mjög sjúkur einstaklingur því lagalistinn hjá mér hefur ekki tekið nokkrum einustu breytingum í hálft ár og það sem meira er, ég verð alltaf jafn glöð þegar ég sest við tölvuna og set á mig stóru heddfónana og hlusta á þennan lista. Ég ætla að láta hann flakka með að gamni. Versgú!

Bee Gees & Dionne Warwick-Heartbreaker
Bee Gees-Greese theme
Björgvin Halldórs-Vetrarsól
Brunaliðið-Ástarsorg
Brunaliðið-Ég er á leiðinni
Gunnar Þórðarson og Lummurnar-Viltu með mér vaka
Gunnar Þórðarson og Lummurnar-Dísa í dalakofanum
Gunnar Þórðarson og Lummurnar-Vertu ekki að horfa
Hemmi Gunn-Minning um mann (í miklu uppáhaldi)
Hera-Itchy Palms (loksins eitthvað í anda konu á þrítugsaldri, hugsa eflaust margir)
Jóhann G. Jóhannsson-Don't try to fool me
Logar-Minning um mann
Magnús & Jóhann-Mary Jane
Michael Buble-Home
Ray Charles-Hit the Road Jack
Ray Charles-Unchain my heart
Stuðmenn-Það jafnast ekkert á við jazz
Stuðmenn-Halló halló halló
Valgeir Guðjónsson-tónlistin úr Punktur punktur komma strik-kvikmyndinni
Valgeir Guðjónsson-Kramið hjarta
Védís Hervör Árnadóttir-Fyrrum ég, fyrrum þú

Og hér koma uppáhalds lögin!
Áhöfnin á Halastjörnunni-Út á gólfið (þetta lag er by the way er í flutningi Hemma Gunn)
Áhöfnin á Halastjörnunni-Stolt siglir fleyið mitt (er til betra lag???)
Ðe Lónlí Blú Bójs-Heim í Búðardal
Ðe Lónlí Blú Bójs-Harðsnúna Hanna (mig langar alltaf á dansiball þegar ég heyri þetta lag)
Óðinn Valdimarsson-Ég er kominn heim (fegursta lag sem ég veit um)

Þetta er sem sagt tónlistin sem getur alltaf kætt mig öllum stundum :) Ef einhvern langar að koma til mín í partý þar sem þessi lagalisti verður látinn rúlla allt kvöldið, þá vinsamlegast leggið inn pöntun hér að neðan. Þegar það verða komnir 10 manns á listann eða svo, þá blæs ég til veislu :) Veitingarnar yrðu kannski í stíl við tónlistina, svona stone-age something. Góðar hugmyndir að svoleiðis vibba eru vel þegnar takk.
Góða nótt, sjáumst í partýi aldarinnar hjá mér innan fárra mánaða ;)