Jæja, hér kemur tilraun númer tvö á þessum nýja og undarlega stað. Ég er orðin dálítið flinkari en síðast, og eins og sést hefur mér tekist að setja inn hlekk á myndasíðuna mína. Annars hefur verið nóg að gera síðan ég skrifaði síðast. Mamma hans Hjartar kom með okkur hingað út og við höfum verið ansi dugleg að fara í skoðunarferðir síðan við komum. Við höfum farið í bæinn á hverjum degi og fórum m.a. í síkjasiglingu í dag sem var ansi gaman. Reyndar rigndi dálítið og ég ég var klædd eins og ég væri að fara að dansa magadans í miðbæ Bombay í 40 stiga hita, á stuttum buxum og berfætt í skónum og lítill peysudulu. Ég beit bara á jaxlinn og bölvaði í hljóði eins og sönnu hörkutóli sæmir og lét sem mér líkaði kuldinn og vosbúðin nokkuð vel.
Þegar við svo stigum í land eftir volkið á dönsku síkjunum fórum við á kaffihús í miðbænum og fengum okkur brennandi heitt og gott kaffi og héldum svo heim á leið.
Nú ætla ég hins vegar í sturtu og ætla svo að prófa nýju brúnkuklútana mína. Spennt að sjá hvort ég verði eins og blettatígur eftir bjútímeðferðina :)
Ciao
ykkar Helgi H.

|